2006-08-04Uncategorized Standard
Föstudagur 4. ágúst 2006
Önnu-ismi
Anna og ég erum niðri að borða morgunmat. Hrefna er nýbúin að kalla niður hvort ég hafi tekið lak og teppi með heim af leikskólanum í gær:
Anna: Hvað varst þú að hrópa?
Pabbi: Mamma var að spyrja hvort þú hefðir pissað í lakið á leikskólanum.
Anna: Neeeeh… kannski seinna?
Pabbi: Ha?
Anna: Maybe seinna?
Pabbi: Neeeei…
Anna: #horfir hugsandi út um gluggann# Neh… Ekkert piss… laki mitt.