Föstudagur 2. júní 2006
Anna prakkari
Ég kom að Önnu í morgun þar sem hún var búin að fletta ofan af hálfri klósettpappírsrúllu og var að leggja klósettpappírinn í hrúgu á gólfið.
Finnur: Anna Sólrún, hvað ertu að gera?!
Anna: (tekur stolt upp klósettpappírshrúguna og sýnir Lego kallinn undir) Þetta er teppi, pabbi…
Finnur: (hnykklar brúnir) Heyrðu nú mig, maður notar ekki klósettpappír sem teppi
Anna: Hann er lúllandi… manstu?
Hrefna: Hérna Anna, hér er teppi (réttir Önnu teppi)
Anna: Óóóóókeeeeeeeiiiii (tekur við teppinu)
Anna breiðir teppið yfir Lego kallinn sinn, leggst svo við hliðina á teppinu og breiðir annað teppi yfir sjálfa sig. Stuttu síðar (þar sem hún liggur ennþá á gólfinu) ber hún plasthænu upp að vörunum (eins og hún sé með gjallarhorn) og hrópar:
ALL ABOARD!!! ALLIR UM BORÐ!!! 🙂