2006-06-19Uncategorized Standard
Laugardagur 17. júní 2006
12 ár!
Í dag erum við Finnur búin að “vera saman” í 12 ár!!! T-Ó-L-F ár! Það passar einmitt að við erum á okkar fjórðu heimsmeistarakeppni í fótbolta, en okkur er ennþá í fersku minni þegar Vignir kom upp á efri hæðina í Byggðarendanum til að setja spólu í vídeótækið fyrir næsta leik um það bil þegar sólin var að rísa þann 18. júní. Ahemm… 🙂
Dagurinn var annars ekkert sérstaklega rómantískur. Við tókum Baldur að okkur á meðan foreldrarnir fóru á siglingu um Monterey flóa og hann og Anna Sólrún léku sér afskaplega vel, þrátt fyrir að það væri heitt úti og auðvelt að vera svolítið pirraður. Um kvöldið var svo grillveisla fyrir seglkappana og svo lognuðumst við út af, enda ekkert grín að vera tveggja barna foreldrar! 🙂