Miðvikudagur 1. mars 2006
Afmælisvertíðin hefst
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag!! 🙂 Er orðin alveg TUTTUGU-OG-NÍU ára – Vúhúúú!! 🙂 Á morgun, 2. mars á svo Anthony bróðir 8 ára afmæli, daginn þar á eftir eigum við Finnur 6 ára brúðkaupsafmæli (!!!) sem mun vera kennt við járn eða sykur og svo tveimur dögum eftir það á Eyrún systir Finns afmæli. Við erum ennþá að leita uppi eitthvað sem gerist 4. mars!! 🙂
Þar sem Amazon er eitthvað að draga lappirnar með að senda pakkann minn, þá gaf Finnur mér brúðkaupsgjöfina strax núna áðan, kassa af Gudrun (I kid you not) belgísku súkkulaði! 🙂 Annað kvöld (það er nefnilega eiginlega ennþá þriðjudagur) þá er stefnan sett út að borða á Sundance steikarhúsið sem við fórum með pabba á í fyrra þegar hann varð fimmtugur! 🙂
VIÐBÓT!! (Rituð 1. mars 2006 klukkan 08:45 að staðartíma)
Takk fyrir allar góðu kveðjurnar og TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ STEINUNN!!! 🙂 Ekki nóg með það heldur til hamingju með afmælið Clint og til hamingju með afmælin þann 27. febrúar Óðinn hennar Huldu, Fremont-Guðrún og Hreiðar hennar Ingu. Það lítur því út fyrir að afmælisvertíðin hafi í raun byrjað á mánudaginn!! Alltaf er ég of sein með fréttirnar!