Föstudagur 25. nóvember 2005
Annar í þakkargjörð
Sit hér í morgunsárið fyrir framan tölvuna heima hjá Guðrúnu og Snorra. Við eyddum nefnilega með þeim þakkargjörðinni í gær og við bara nenntum ekki að keyra heim seint í gærkvöldi, svo við sváfum bara hérna nótt! Vöknuðum við að það væri farið að rigna (!!!) og að restin af Bandaríkjnum væri farin að versla jólagjafir!
Á morgun koma pabbi og Anthony og verða hjá okkur í viku. Pabbi verður fimmtugur á þriðjudaginn, svo við þurfum að finna okkur eitthvað gott veitingahús til að heimsækja. Annars er lítið planað fyrir heimsóknina annað en að ég ætla að reyna að plata pabba í morgunpössun á Önnu Sólrúnu svo ég geti unnið smotterí… 🙂 Anna Sólrún er annars 23 mánaða í dag – bara einn mánuður í 2ja ára afmælið – og þar með jólin! 🙂