Miðvikudagur 7. september 2005
Kvöldstund
Hann Finnur baðaði Önnu í kvöld og setti hana í rúmið eins og alltaf, en fór síðan til að spila póker fyrir $2. Anna Sólrún var að sjálfsögðu ekki sofnuð þegar hann fór, svo það kom ekki mikið á óvart að hún byrjaði fljótlega að kalla eftir… bleiu! Ég fór upp, og jújú, stóð ekki mín allsber í rúminu, búin að fara úr bæði náttpeysunni og buxunum, og losa af sér pissubleiuna. Hún stóð sem sagt í rúminu og benti æst á “pull-ups” bleiupakkann við hliðina á rúminu. Ég setti eina svoleiðis á hana, og hún þóttist fara að sofa, en áður en það gerðist loksins var ég búin að ná í meiri mjólk fyrir hana og skipta tvisvar um pissubleiur í viðbót!! Þvílíkur prakkari!! 🙂
Annars er ég aftur á næturvakt, vonandi styttri en í gær, en þá var ég ekki komin heim fyrr en um 6-leytið… zzzzzz… hehe…