Miðvikudagur 14. september 2005
Adda og Halli komin!
Adda, Halli og Hildur Sif eru komin til okkar heil á höldnu frá Íslandi eftir beint flug frá Keflavík. Þau ætla að vera í viku hér, viku í Seattle og koma svo aftur og verða í aðra viku hjá okkur. Það verður nóg að gera, stefnan að gera fullt af skemmtilegum hlutum – fara í vínsmökkun í Napa Valley, helgarferð til Monterey og að ógleymdu Settlers kvöldi (kind fyrir hveiti, einhver?) :), svo eitthvað sé nefnt. Þau komu annars færandi hendi með íslenskt súkkulaði og karma-mellur 🙂 sem og síðbúna afmælisgjöf handa mér – Síríus konfektkassa (ormur á gulli, einhver?) 🙂 og tvær íslenskar klassískar myndir á DVD (Nýtt líf og Sódómu) sem er frá þeim þremur og Hólmfríði og Óla og Arnljóti litla (kettinum)! 🙂 Ég segi nú bara takk fyrir mig! 🙂