2005-09-22Uncategorized Standard
Fimmtudagur 22. september 2005
Sjaldan er ein báran stök…
Í gærkvöldi leit út fyrir að Anna Sólrún væri komin með hálsbólgu, en núna í morgunsárið þá virtist það frekar vera almennt kvef, með sérstaka áherslu á lek augu. Hún fór því heldur ekki á leikskólann í dag, og fer að öllum líkindum ekki heldur á morgun. Ef hún verður hressari á morgun förum við samt kannski á smá verslunar-rúnt eða eitthvað, enda fátt skemmtilegra en að eyða pening! 🙂
Aðal spennan verður samt að sjá hvort ljósguli gröfturinn úr augunum breytist í andstyggilegan grænan gröft eða ekki, því ef hann gerir það þá þarf hún víst lyf…