2005-08-20Uncategorized Standard
Laugardagur 20. ágúst 2005
Skondin Önnu-moment
Anna vaknaði af venjubundnum hádegislúr í dag og hennar fyrsta verk var að setjast upp, benda í forundrun á heklaða teppið sem amma og afi Mosó gáfu henni, grípa svo í hægri fótinn á sér og kyssa á sér tærnar fimm sinnum. Frekar skondið. 🙂 Núna situr hún á stofugólfinu og svæfir bangsana og dúkkurnar sínar með því breiða tuskur ofan á þau og sussa í svefn. Dúkkur þurfa nefnilega að sofa líka. 🙂