2005-05-03Uncategorized Standard
Þriðjudagur 3. maí 2005
Anna veik
Þær hringdu í okkur af leikskólanum í dag og sögðu að Anna væri veik þannig að Hrefna náði í hana snemma. Ekkert alvarlegt, bara hiti og lystarleysi. Hún er núna vöknuð eftir síðdegisbludinn (mjög óvenjulegt að hún sofi milli 5 og 6) og er að rétta mér alla kubbana sína. 🙂 Hrefna á kvennfélagsfundi. Annars hafa tvö orð bæst á listann sem við mundum ekki eftir: Dei (skeið) og Tah (takk). 🙂