2005-05-07Uncategorized Standard
Laugardagur 7. maí 2005
Pow Wow!
Vikað þaut hjá og ég trúi því ekki að það sé kominn maí! Við gerðum lítið, skiptumst á að vera þreytt á miðvikudags- og fimmtudagskvöldið og í gærkvöldi var Daily Show kvöld. Í dag röltum við Anna hins vegar með Söruh á Pow Wow indjánahátíð sem var haldin á kampus. Sáum þar indjána í fullum skrúða, þar á meðal eins stelpu í “smiley face” búning! 🙂 Hlustuðum á þá syngja (svoldið eins og skornir grísir en ekki alltaf) og sáum þá dansa áður en við röltum heim aftur.
Um kvöldið komu amerísk nágrannahjón okkar í kvöldmat og Anna Sólrún og litli strákurinn þeirra (2ja ára) léku sér saman á meðan við fullorðna fólkið átum og drukkum.
Spurning hvort ég herði upp hugann í Yosemite myndirnar?!?! Þær eru bara 143 talsins… 🙂