2005-04-07Uncategorized Standard
Fimmtudagur 7. apríl 2005
Óvenju árrisul
Eftir að við komum frá Íslandi, þá hefur Anna Sólrún farið að sofa um 7 á kvöldin og vaknað algjörlega klukkan 7 á morgnana (eftir smá brölt um 5 leytið yfirleitt). Þetta er heilum 2 klst fyrr en við letibykkjurnar erum vön svo þetta er þó nokkur breyting! Fyrstu tvo morgnana skreið Finnur á fætur með henni ásamt okkar álíka árrisulu gestum, en í morgun tókum við Holla morgunvaktina. Litla dúllan fer nefnilega aftur að sofa upp úr níu…
Annars er lífið bara búið að vera rólegt. Á þriðjudaginn fórum við þrjú í hæðagöngu, í gær fóru H&Ó upp í borg á meðan ég vann pínku og í dag er rigning svo ég veit ekki hvað verður. Svo erum við búin að taka óhugnanlegt magn af myndum sem þarf víst að koma á netið fyrr eða síðar… gúlp! 🙂