2004-09-13Uncategorized Standard
Mánudagur 13. september 2004
Hor og hlaupaskór
Hún Anna fékk enn eina leikskóla”pestina” á laugardaginn – hor, hor og aftur hor í nös! Sem betur fer virtist enginn hiti eða hósti fylgja horinu, en á móti kemur að stíflan í nefinu hefur þýtt að hún hefur ekki sofið mjög vel. T.d. eyddi hún meiripartinum af síðustu nótt sofandi á mér – þ.e.a.s. hún var hálf-sitjandi/hálf-liggjandi upp við mig þar sem ég lá á hliðinni. Og svo vaknaði hún á 2ja tíma fresti. Ég þakka bara fyrir að hafa náð að sofa í klst eftir að Finnur fór þegar Anna tók morgunlúrinn sinn…
Og já, svo keypti ég mér hlaupaskó í dag…