2004-09-08Uncategorized Standard
Miðvikudagur 8. september 2004
Snyrtivörur Jókersins
Ég rambaði inn á þessa síðu sem metur hversu öruggar snyrtivörur eru, og niðurstaðan er sú að ég held að ég flytji bara upp á fjall og gerist einbúi með svitalyktinni minni og skítuga hárinu mínu. Sérstaklega fer það í taugarnar á mér að snyrtivörur sem gera sérstaklega út á það að vera “natural” og hvaðanaeina eru alveg jafn spúkí og hinar sem gera það ekki. Hvað á maður nú að gera!??!?!