2004-08-25Uncategorized Standard
Miðvikudagur 25. ágúst 2004
Steinunn farinn – sniff… sniff…
Hún Steinunn fór til Íslands eldsnemma í morgun, Finnur keyrði hana á flugvöllinn klukkan 4 og við Anna vöknuðum báðar til að kveðja hana. Nú bíður hennar 20 tíma ferðalag, og hún lendir ekki fyrr en klukkan 06:20 á fimmtudagsmorgni á Íslandi. Það er því heldur tómlegt í kotinu okkar. 🙁 Næstu dagar verða eflaust skrítnir, enda Steinunn búin að vera hjá okkur í þrjá mánuði! (Spurning: Hvert fóru þessir þrír mánuðir eiginlega??!?! Síðast þegar ég vissi var 2. ágúst!!!)