2004-08-28Uncategorized Standard
Laugardagur 28. ágúst 2004
Hita-öppdeit
Eftir að kvöldmaturinn kom öfugur upp úr Önnu og hún fékk aftur hita þegar verkjalyfið hætti að verka, hringdi ég í Soffíu barnalækni sem skipaði mér að sjálfsögðu að mæla hitann í rassinum en ekki undir handakrikanum (what can I say, I’m a pussy…). Þar mældist hitinn 39,6 gráður og við gáfum henni snarlega tylenol aftur til að lækka hitann. Sem betur fer virðist Anna bara vera nokkuð kát þannig að við höfum ekki miklar áhyggjur, en kannski að við látum kíkja á hana á morgun bara til öryggis…