Laugardagur 19. júní 2004
Flutt!
Við fluttum í dag aftur á kampus, í sömu götuna og við bjuggum fyrsta árið okkar hérna úti!!! Íbúðin er afar fín og við erum ekkert smá glöð að vera loksins flutt!! 🙂 Flutningarnir gengu ótrúlega vel, enda um 10 manns alls að hjálpa til auk þess sem við vorum búin að standa í ströngu við að henda og pakka og henda og pakka undanfarna viku. Það tók því bara rétt rúma klst að hreinsa út úr íbúðinni, og hálftíma að henda öllu inn í nýju íbúðina! Við vorum síðan að raða og koma öllu fyrir fram að kvöldmat eða svo og núna er bara nokkuð “lifanlegt” hérna inni. Stofan er reyndar mjög þétt skipuð, sófarnir líkjast meira hornsófa en tveimur sófum en annars virðist þetta bara ætla að komast nokkuð vel fyrir.
Á morgun þarf síðan að klára að snurfusa hérna inni, sækja eitt “queen-size” rúm sem við fáum gefins fyrir Steinunni og síðan hreinsa gömlu íbúðina. Þess fyrir utan er 17. júní Íslendingafélagsins á morgun. Nóg að gera… 🙂 Sjá Steinunnar-blogg fyrir meiri smáatriði.