2004-02-16Uncategorized Standard
Mánudagur 16. febrúar 2004
Stækki, stækki!
Við mældum hana Önnu Sólrúnu í dag, hún virðist vera orðin 5 kg og 58 cm löng (fæddist 3170 gr og 49,5 cm)! Það er u.þ.b. cm á viku því hana vantar bara 3 daga í að verða 8 vikna gömul. Samkvæmt þessu grafi hérna, þá er hún algjört meðalbarn, kannski pínkulítið á lengri kantinn, en ekki mikið. 🙂