2004-02-24Uncategorized Standard
Þriðjudagur 24. febrúar 2004
Kaupi, kaupi
Í dag ferðuðumst við pabbi, Anthony og Anna á milli búða og festum kaup á GameBoy (afmælisgjöf handa Anthony) og slatta af fötum. Á meðan var Finnur í vinnunni (hann var veikur heima í gær) og svo fórum við öll út að borða um kvöldið. Í gær fórum við hins vegar í sædýrasafnið í Monterey sem stóð fyrir sínu eins og venjulega. Á morgun fer Anna Sólrún í 2ja mánaða skoðunina sína og fær væntanlega einhverjar mótefnasprautur í tilefni af því. Við vonum bara að hún verði ekki mjög pirruð í kjölfarið á því… ahemm.