2004-01-10Uncategorized Standard
Föstudagur 9. janúar 2004
Barnarúm!
Loksins, loksins, loksins… Skrifborðið er farið úr svefnherberginu og barnarúmið komið í staðinn!! 🙂 Jibbííí! 🙂 Við fengum nefnilega Augusto og Söruh í heimsókn og þau voru þjóðnýtt í smá þjóðflutninga. Til að auðvelda aðlögunina að því að vera ekki lengur með tölvuna í svefnherberginu var hins vegar fjárfest í þráðlausum internet-sendi og núna getum við því verið á netinu í svefnherberginu með fartölvuna… Sweet! 🙂