2003-11-18Uncategorized Standard
Þriðjudagur 18. nóvember 2003
Stífelsi
Jæja, þá er ég líkamlega farin að finna fyrir óléttunni… Bakið er allt stíft í miðjunni, búkurinn í heild sinni er allur stífur, það er eitthvað að potast upp í rifbeinin mín og fæturnir eru bólgnir. Það var nú kannski líka kominn tími til, því ég hef heyrt að tíminn í kringum 30 vikur (ég er komin 33) sé verstur, en svo lagast þetta aftur um 36 viku þegar barnið súnkar niður í mjaðmagrindina. Þá mun maður víst getað andað léttar!