2003-07-27Uncategorized Standard
Sunnudagur 27. júlí 2003
Næst-síðasta helgin fyrir Íslandsferð
Finnur var kallaður í vinnuna um hádegi í dag, svo ég eyddi deginum hérna heima í að lesa Entertainment Weekly (“my guilty pleasure”), þvo þvott, taka til í eldhúsinu og svo kíkti ég loksins á Buffy DVD diskana mína, nánar tiltekið 2 þætti úr annarri seríu. Finnur hringdi síðan og sagði að honum hefði verið boðið í kvöldmat fyrir að vinna á sunnudegi, nema hvað að ég hafði ætlað að elda kvöldmat. Niðurstaðan var sú að vinnan hans Finns bauð okkur í kvöldmat… 🙂
Enduðum kvöldið á að horfa á Punch Drunk Love, sem var stórfurðuleg og eiginlega ekki góð mynd. Aðallega bara stórskrítin.