2003-07-29Uncategorized Standard
Þriðjudagur 29. júlí 2003
Finnur á afmæli í dag!
Hann Finnur minn á afmæli í dag!! Hann er orðinn 29 ára, og verður það líklega hér eftir… 😉
Í tilefni dagsins gaf ég honum vatnsheldan kassa utan um stafrænu myndavélina okkar, svo nú getur hann farið að kafa með hana og tekið myndir af fiskum, kröbbum og þangi á meðan ég húki uppi á strönd (því manni er bannað að kafa þegar maður er óléttur). Ég gat ekki betur séð en að hann væri bara kátur með gripinn… 🙂
Annars er bara venjulegur vinnudagur í dag, ég svaf ágætlega í nótt og ég er búin að kveikja á Matrix tónlistinni (vinnutónlistin) þannig að hvur veit, kannski verður mér eitthvað úr verki! 🙂