2003-07-31Uncategorized Standard
Fimmtudagur 31. júlí 2003
Rigning!
Ótrúlegt en satt þá rigndi í dag! Ef þetta er ekki staðfesting á því að veðrakerfi heimsins eru að fara í rugl… þá veit ég ekki hvað! 🙂
Annars var þetta ágætur dagur, ég náði að einfalda hlut sem ég hafði verið að flækja fyrir mér, og verk dagsins tók því miklu skemmri tíma en ég hafði búist við. Svoleiðis dagar eru ágætir… 🙂 Þá var mér líka boðið að vera TA (teaching assistant) fyrir næsta haust fyrir grunn-radar-kúrsinn sem ég gæti hreinlega samþykkt því mér líkar vel við radar og radarfræði og kennarinn er afskaplega vingjarnlegur… 🙂
Dagurinn endaði svo á jóga (ahhhh… 🙂 og kvöldmat á la Finnur. Á morgun er skoðun hjá ljósmóður, og ég vona bara að það sé allt með felldu.