2003-06-11Uncategorized Standard
Miðvikudagur 11. júní 2003
Öndinni varpað léttar
Þetta getur ekki verið rétt setning!! Hvað um að, ég get núna “varpað öndinni léttar”, enda búin að skila af mér lokaverkefninu í Tölulegri rafsegulfræði!! Jibbískibbí!! Tók sprett í gær og vakti til miðnættis yfir LaTexinu og svo náði ég að skila þessu 5 mínútum yfir 5 e.h., bara 5 mínútum of sein… 🙂
Núna sit ég við skrifborðið og finn hvernig heilinn er að slökkva á sér eftir spól síðustu daga og mikið rosalega langar mig í rúmið núna… zzzzzz…