2003-05-12Uncategorized Standard
Mánudagur 12. maí 2003
Nýbakað brauð í morgunmat, ekki slæmt það! 🙂
Ég vaknaði á undan vekjaraklukkunni við ilmandi brauðlykt úr eldhúsinu í morgun! 🙂 Var þar á ferðinni allra fyrsta brauðið hans Finns með nýju brauðvélinni, alveg rosalega gott fransbrauð (skorpan var sérstaklega góð)! 🙂 Hann kom með brauð í rúmið (nammi namm) en síðan þurfti ég því miður að fara á fætur og í skólann.
Dagurinn leið með herkjum, hann fór í að búa til þykjustu “námugöng” í matlab – og reyna að láta þau ekki vera of Smáralindar-leg í laginu… 😉