Mánudagur 17. mars 2003
…it’s just another week in paradise…
Jæja, kominn mánudagur! Finnur er búinn að hafa það merkilega gott um helgina, varla nokkur bólga sjáanleg (7-9-13) og 3-4 íbúprófein töflur á dag hafa dugað hingað til (en ef einhver hefur áhuga þá eigum við líka vidocin sem mun vera “narcotic”… 😉
Helgin er búin að vera alveg svakaleg DVD helgi… Frá því á föstudag: 1) Murder by numbers, 2) In the bedroom, 3) Road to perdition, 4) Sweet home Alabama, 5-7) Fyrstu 3 þættirnir af The Sopranos, 8) Monsoon wedding, 9) Orange County, 10-15) Þættir 4-9 af Sopranos…
Finnur ætlar í vinnuna núna, og ég veit ekki alveg hvað ég á af mér að gera… Ég er búin í öllum tímum, og á að fara í lokapróf á föstudaginn, en fram að því þá er advisorinn minn í burtu og ég veit bara ekki hvort ég nenni að gera nokkurn skapaðan hlut!!! En ætli ég fari samt ekki í skólann, þó um seint og síðir verði… og svo snemma heim!! 🙂