2003-03-27Uncategorized Standard
Fimmtudagur 27. mars 2003
Komin til Íslands, gamla Íslands… 🙂
Var að lenda fyrir þremur tímum síðan og er við það að skríða í bælið… 🙂 Flugið var fínt, vélin var ekki nærri því full, og ég fékk heila röð út af fyrir mig sem ég nýtti mér út í ystu æsar, breiddi úr mér með teppi yfir lappirnar og úlpuna fyrir bakið, og las bók. Svo komu Arnar (móðurbróðir) og Magnea að ná í mig á völlinn og skutluðu mér heim til mömmu, þar sem ég kem til með að gista næstu nætur. 🙂
Alveg súper gaman að sjá familíuna svona alla í einum ofur-spring-break-pakka!! 🙂 Mæli með þessu! 🙂