2003-03-30Uncategorized Standard
Sunnudagur 30. mars 2003
Mikið líður tíminn hratt…
Ég trúi því varla en ég er að fara að fljúga til Englands á morgun… Þessir dagar hafa hreinlega fokið hjá – svona eins og öll snjókornin sem hafa heimsótt Reykjavík síðan ég kom. Í gær var algjörlega hvít jörð og voða gott veður. Í dag var hins vegar slydduveður, ekki alveg rok, en nokkuð hvasst samt. Á þessum fáu dögum náði ég að heilsa upp á örfáa kunningja og vini, svo ekki sé minnst á fjölskyldu bæði míns og Finns, en að venju urðu allt of margir útundan, enda bara allt of lítill tími!!! Og það er skrítið að hugsa til þess að á þriðjudaginn byrjar skólinn upp á nýtt… eiginlega hálf súrrealískt… (sem er hér með orðið mitt uppáhaldsorð í bili)…