2003-03-31Uncategorized Standard
Mánudagur 31. mars 2003
Komin aftur til Englands!
Flugið til baka var fínt – vorum í vélinni sem Iceland Express fékk lánaða því Iceland Express vélin bilaði um helgina… Ég var við gluggann og sætið við hliðina á mér var tómt, en það sat ein við ganginn. Sat bara og las alla leiðina! 🙂
Leist nú ekki á veðrið á Reykjanesbrautinni (rok og rigning) en veðrið lagaðist þegar leið á daginn og var allt í lagi þegar við fórum á loft. Snjórinn var að sjálfsögðu farinn líka… 🙁