2003-02-23Uncategorized Standard
Laugardagur 22. febrúar 2003
Finnur snýr aftur
Ég náði í minn heittelskaða eiginmann um hádegisbilið í dag og eftir að hann var búinn að horfa á Everton vinna Southampton (yay!) þá tók hann til við heimilisverkin og lagaði kommentakerfið! 🙂 Á meðan kláraði ég vefsíðu um ferðina okkar í Hearst kastalann (nota bene: búin að bæta við myndbandi af selunum). Síðan fórum við til Elsu og Þráins og horfðum á Sódóma Reykjavík ásamt Berglindi, Styrmi og Björgvini. Algjör snilldarræma sem hefur elst alveg fantavel! 🙂