2003-01-16Uncategorized Standard
Fimmtudagur 16. janúar 2003
Kvölin, dagur #4
Erin, Shadi og Fraser tóku kvölina í gær – og það er engin leið að segja til um hvernig þeim gekk – maður vonar bara það besta! Annars er lífið að falla í fastar skorður á ný, vakna, fara í skólann, fara í tíma/gera heimadæmi, fara heim, horfa á sjónvarpið/taka til myndir/bora í nefið, fara að sofa.
Afrek gærdagsins var að ég tók til á skrifborðinu mínu á meðan ég var að brenna diska með dóti sem ég hef náð í af netinu (sem var við það að fylla harða diskinn minn). Í dag er ætlunin að gera heimdæmi.