2002-12-19Uncategorized Standard
Home sweet home…
Það er kominn annar “stormur” sem í þetta sinn er nokkuð þétt rigning (akkúrat núna er ágætis skýfall) og ekkert svo mikill vindur – þannig að tréin ættu að haldast upprétt og rafmagnið með! 🙂 Annars er ég bara heima, var að horfa á Goldmember með Austin Powers sem ég náði í um daginn og nú er bara að eyða tímanum fram til svona klukkan 5 en þá ætla ég að versla smá, ná í Finn og fara svo á Two Towers klukkan átta. Reyndar þurfum við líklega að mæta svoldið snemma í bíó því fólk á það til að standa í biðröðum – en kannski er veðrið nógu andsk… leiðinlegt til að fólk nenni ekki að mæta snemma…?!?!