Mánudagur 11. nóvember 2002
Linsuvesen
Ég er á síðasta augnlinsuparinu mínu og það er orðið illilega lúið, enda búið að vera í notkun í svona einn og hálfan mánuði í staðinn fyrir tvær vikur… ahemm… Hvort sem það var því að kenna eða einhverju öðru þá var þetta svona sleepy dagur from hell. Kom varla nokkru í verk og var ótrúlega fegin að komast bara heim í sjónvarpið mitt. Fyrst fór ég reyndar með Kerri í Target þar sem hún festi kaup á skrifstofuhillum fyrir okkur (enda hún löngu búin að sprengja utan af sér allt hillupláss – og ég á góðri leið í sömu átt) og ég býst við að mæta í hilluparadís á skrifstofunni á morgun! 🙂
Annars fórum við á Eminem myndina í gær, 8 mile, með Loga. Mér fannst hún fín, gefa innsýn inn í heim sem ég þekki ekki, en Finni fannst hún frekar slöpp…