2002-11-23Uncategorized Standard
Föstudagur 22. október
Loksins loksins!
Fékk hálsbólgu í dag og er þar með orðin “veik” 🙂 Og hef þar með afsökun þessa helgi til að liggja í rúminu/sófanum og gera ekki neitt! 🙂 Skrópaði reyndar í saumaklúbb í kvöld, vildi ekki vera að smita fleiri en bara skólafélagana – og ég var ekkert viss um að raddböndin mín myndu þola saumaklúbbsálagið. Fyrr um daginn héldum við upp á afmæli Augusto og Erin, ég fór og keypti handa þeim gjafir og partýdót. Við ætluðum líka að heiðra Loga en hann virtist vera að fara á “deit”!!… 🙂