2002-11-24Uncategorized Standard
Laugardagur 23. nóvember
Saltfiskur!!
Eitthvað voru þetta slöpp veikindi hjá mér því upp úr kvöldmatarleyti var ég orðin svo gott sem fín aftur. Það reyndist vera eðal-tímasetning því þá hringdi Snorri hennar Guðrúnar og bauð okkur Finni í íslenskan saltfisk þar sem hann væri til í meiri magni en þau ásamt Elsu, Þráni og Co. næðu að torga! Við auðvitað létum ekki bjóða okkur slíkt tvisvar og brunuðum til Fremont og maturinn var alveg frábær! 🙂 Eftir að Elsa & Co. fóru heim enduðum við kvöldið á “Baunaspilinu ” og Settlers.