2002-10-24Uncategorized Standard
Fimmtudagur 24. október 2002
Hamingjusöm verslunarferð
Kerri dró mig út í “Stanford Kringluna” og við keyptum á okkur gat! Ég fékk mér 8 peysur á 85 dollara, allt í þökk súper Gap-útsölu og J.Crew! 🙂
Nördahúmor
Það getur vel verið að þetta sé ÓGEÐSLEGA GAMALT og að allir viti þetta nema ég, en fyrir þá sem eru með Matlab (reikniforrit) … Fyrst af öllu, skrifið bara “image” og ýtir á enter. Whoa! Kúl!! 🙂 Númer tvö: skrifið inn “why” og ýtið á enter… og svo aftur… og svo aftur…
Fyrir þá sem eru Matlab-lausir þá fylgir hér dæmi:
>> why
Don’t ask!
>> why
You insisted on it.
>> why
Jack suggested it.
>> why
Some bald hamster suggested it.
!!! o.s.fr.v, o.s.frv… 🙂
Aðrir dagbókarar mega gjarnan koma með fleiri dæmi! 🙂