2002-08-15Uncategorized Standard
Fimmtudagur 15. ágúst 2002
Kazaa…
Það hlaut að koma að því – ég er orðin Kazaa sjúklingur… Nú hirði ég ókeypis lög af netinu eins og ég fengi borgað fyrir það (uhh… fæ það reyndar, er nefnilega að gera þetta í vinnunni… hmm… samviskubit?… uhh.. nei!) 🙂 Annars rólegur dagur – ég fékk bílinn því ég á að mæti í “opið hús” hjá vinnunni hans Finns núna á eftir og hann nennti ekki að koma alla leiðina og ná í mig – þessi elska! 🙂 Ég er búin að vera að matlabba smá svona á frekar litlum hraða, á meðan Kerri er á skrilljón fyrir aftan mig því hún er að fara á ráðstefnu í Hollandi núna í næstu viku. Ég sit með heyrnartólin á meðan til að stressast ekki upp af henni.