Mánudagur 29. júlí 2002
Afmælisdagur Finns
Í dag á hann Finnur minn 28 ára afmæli! Til hamingju elskan! 🙂
Annars ætlaði ég að vera þvílíkt dugleg í dag en endaði í staðinn á því að skrá okkur í Frequent Flyer klúbba hjá British Airways og Virgin Atlantic. Síðan er ég búin að standa í ofurlöngum bréfaskriftum við einn ágætan skrifstofufélaga minn sem stendur algjörlega á öndverðum meiði við mig hvað varðar lífið og tilveruna, trúarmál og annað slíkt. Maður veit eiginlega ekki hvað maður á að skrifa mikið um hann en hann er mjög djúpt á kafi í Ísrael og Palestínu dæminu og er afar múslimstrúaður. Við eigum hvorugt eftir að trúbreyta hinu en það er fróðlegt að eiga samskipti við fólk frá svona rosalega ólíkum heimum og manns eigin.
Hvað um það, í kvöld ætlum við Finnur út að borða, og svo líklega spila smá á tölvunni…