Föstudagur 21. júní 2002
Diskalisk og DVDismi
Ég reiddi hjólið mitt upp að disknum stóra í dag og sem betur fer hafði ég fengið rétta lykla! 🙂 Ég ýtti því á tilheyrandi takka, fór og læsti á eftir mér áður en ég braut öll lög með því að hjóla niður brekkuna. Málið var hins vegar það að með lyklunum fékk ég bílakort, svo ég hefði getað keyrt upp hæðina… er þá ekki líklegt að ef ég er ekki á bíl heldur hjóli þá megi ég hjóla þarna?!
Um kvöldið fórum við Finnur út að borða með Kerri, John, Söruh og Loga á Don Giovanni í Mountain View og fengum ágætan mat. Í eftirmat fórum við Finnur með Söruh og Loga heim til okkar og horfðum á Ocean’s Eleven sem var bara eðalfín ræma! 🙂
Og já, p.s. nýja myndavélin hans Óla (sem er búinn að taka þvílíkan bloggkipp undanfarið) kom í dag. Hún getur tekið hreyfimyndir svo við eigum eftir að flippa út á myndatökum áður en við förum með hana heim…