Þriðjudagur 21. maí 2002
Það fer að koma sumar bráðum
Andvarp… í gær var síðasti Angel þátturinn í fjóra mánuði, og í kvöld var síðasti Buffy þátturinn í fjóra mánuði. Á morgun eru svo síðustu þættirnir af West Wing og Star Trek Enterprise. Og þar með getum við hætt að kveikja á sjónvarpinu… 😉
Annars lítið í fréttum. Er að baxa við að gera lokaverkefni/heimaverkefni fyrir radarkúrsinn og svo þarf ég að forrita fyrir tónlistarkúrsinn líka á morgun. Ég er alveg til í að vera búin með þetta misseri og fara að gera eitthvað annað! Það sorglega er hins vegar að ég á amk eitt ár eftir af kúrsum… sniff sniff…
En nóg væl og volæði, lífið mitt er betra en hjá mörgum öðrum! 🙂 Ég gæti t.d. verið eyðnismitaður afríkubúi eða í fangelsi eða eitthvað. Þannig á meðan að ég er bara hér þá er allt í góðu. 🙂
Og p.s. í dag átti afi Finns, hann Eymundur, 89 ára afmæli.