2002-05-23Uncategorized Standard
Fimmtudagur 23. maí 2002
Vitlausari en ég veit ekki hvað
Í dag (og síðustu 3 daga) er ég búin að vera að baxa við að gera fyrsta part af þremur í lokaverkefninu í radarkúrsinum. Verkefnið er nú af skemmtilegri kanntinum, að komast að því hvað er í gagnaskrá frá geimverum, og við vitum bara nokkra af þeim föstum sem við þurfum. Aðalmálið er sem sagt að vinna með skrána og komast að því hvernig hún var búin til… sem væri svo sem allt í lagi nema ef ég væri ekki búin að búa með hausinn í fötu undanfarna daga og ekki haft hugmynd um hvað ég var að gera. En núna er loksins að komast mynd á þetta… mikið er ég glöð! Vonandi get ég þá skilað þessu af mér klukkan 1 á morgun skammlaust… 🙂