2002-03-22Uncategorized Standard
Föstudagur 22. mars 2002
Kræklingar
Er búin að vera í hálfgerðu svefnstuði, vaknaði klukkan 8 í morgun en gafst síðan upp og sofnaði aftur klukkan 11 í þrjá tíma…
Ég og pabbi fórum annars í kvöld með ömmu og Unnari og Hirti út að borða kræklinga hjá Chez Léon – þeir voru í einu orði sagt frábærir! 🙂 Svo kíktum við á Le Grand Place sem er rosaflott torg með rosaflottum byggingum.
Núna er samt best að fara að sofa. zzzzz….