2002-02-23Uncategorized Standard
Föstudagur 22. febrúar 2002
Ég elska saumaklúbba!!
Það var saumaklúbbur hjá Elsu í kvöld og það var frábært að hitta allar “stelpurnar” og bara rabba, kjafta, slúðra og hafa það kósí eina kvöldstund. Annars komst ég að því í dag að einn skrifstofufélagi minn sem er múslimi trúir ekki á þrónarkenningu Darwins og er að reyna að afsanna hana með líkindafræðilegum útreikningum. Hann heldur því fram að það taki of langan tíma að þróast, þ.e. ef þróunarkenningin væri rétt þá væri lífið miklu eldra en í dag er talið. Þetta gæti orðið fróðlegt hjá honum!! Svo er Todd kominn í heimsókn, en hann býr núna í LA eftir að hafa útskrifast frá Stanford síðasta sumar (sjá gamlar dagbækur).