2002-01-07Uncategorized Standard
Mánudagur 7. janúar 2002
Heima
Ég valdi mér prófessora í morgun, það tók allt of langan tíma og ég er ekkert sérstaklega ánægð með árangurinn… Ég er eiginlega komin á þá skoðun að ef vissir aðilar verða ekki á mínum lista (ég valdi 20 og af þeim fæ ég 10 – nokkuð random) þá er ég svo gott sem fallin. Grrr… Svo leit ég yfir gamlar spurningar – það tók líka of langan tíma – og núna er ég að éta súkkulaði.
En lífið heldur áfram og á meðan ég er að lesa mér til um “sampling and reconstruction” þá er ég að þvo allt rúmfatasettið 🙂