2002-01-21Uncategorized Standard
Föstudagur 18. janúar 2002
Lítið gert
Ákvað að taka deginum með stóískri ró og taka örlítið til í svínastíunni okkar um morguninn. Sníkti þar eftir far með Augusto niður í skóla þar sem ég mætti í hádegismat en þá var eins og allt eldsneytið væri búið og eftir stutta stund fór ég með Augusto heim á leið aftur, nema hvað að við fórum ekki heim heldur í búðina og keyptum dót í tilvonandi pizzuveislu. Því næst fór ég og þvoði bílinn hans á meðan hann bjó til pizzadeig, því skömmu síðar þurfti hann að þjóta á flugvöllinn og ná í Lauru, kærustuna hans sem býr í Los Angeles.
Um kvöldið fórum við Finnur svo í margarítuveislu til Kerriar (sjá pics) og því næst í pizzaveislu til Augusto þar sem við dvöldum svoldið fram eftir við spilamennsku.