2002-01-27Uncategorized Standard
Föstudagur 25. janúar 2002
Fagnaður
Í tilefni kvalaloka ákvað allur hópurinn (um 15-20 manns) að fara á djammið um kvöldið. Byrjuðum á því að fá okkur gott að borða á Gordon Biersch (ég fékk mér “grísí” hamborgara til að undirbúa magann fyrir átök kvöldsins) og að sjálfsögðu fengum við okkur bjór með, því Gordon Biersch er bjórtegund! Að máltíð lokinni fórum við og fengum okkur “gelato”-ís áður en við fórum á Blue Chalk þar sem við svöluðum þorsta okkar, ásamt því að drengirnir spiluðu pool. Undir miðnætti var kominn fiðringur í fólkið og við héldum á F&A; og dilluðum okkur dáldið áður en fólk ákvað að fara heim. Augusto var svo indæll að skutla okkur heim og þar með var kvalafagnaði lokið! 🙂