Sunnudagur 27. janúar 2002
Ahhh… andleg sæla!
Finnur var eitthvað búinn að lýsa því yfir að hann þyrfti að vinna í dag, þannig að ég þurfti að finna mér eitthvað að gera. Þar sem við eigum núna eftir að vera hérna eitthvað aðeins lengur fannst mér alveg tilvalið að bæta í húsgagnastaflann og því keyrði ég Finn í vinnuna og fór síðan í Pier 1 Imports og fann þar voða sæta hillu sem ég bara varð að kaupa… Þá hringdi Finnur í mig og sagðist vera búinn þannig að við bara ákváðum að skreppa í Ikea og sameina þannig tvo hluti: 1) komast úr á “freeway”inn og keyra aðeins um og 2) kaupa gardínur. Þess skal getið að Finnur fann ekki hjá sér neina þörf til að gera 1) eða 2) – en ákvað að vera nú góður við konuna sína – svona einu sinni!! 🙂 hehe
Um kvöldið fórum við svo út að borða á Olive Garden með hrúgu af Írönum og fleirum og héldum upp á afmæli Hossein. Merkilegt nokk þá eru komnar nýjar myndir af því á myndadagbókarsíðunni!