2002-01-30Uncategorized Standard
Mánudagur 28. janúar 2002
Dazed and confuzed
Æji – eitthvað er maður búinn að vera eftir þetta kvalabrölt… og föstudagskvöldið! Rétt svo náði að klára ein skítlétt heimadæmi (skemmtileg tilbreyting að geta gert þau á minna en tveimur tímum!) og síðan skriðum við út að borða með Augusto á Taj Mahal. Svo keyptum við upphengsli fyrir gardínurnar okkar í Walmart (sem við gleymdum að kaupa í Ikea) og Finnur (þessi hetja) tók fram borinn og setti þær upp!! Ég reyndi síðan að stytta faldinn… en var að því um klukkan 23:30 þannig að afraksturinn (náði bara að gera aðra gardínuna) var ekki alveg “beinn”… uhhh… Ég hef þá bara eitthvað að gera um helgina!! 🙂