Mánudagur 3. desember
It’s the Final Countdown…!
Ahh… skilaði inn næst síðasta heimadæmaskammti annarinnar! Nú er bara einn á morgun og þá eru eftir 3 próf og eitt lokaverkefni! 🙂 Reyndar var aðalverkefni dagsins að halda Augusto á lífi. Í morgun var nefnilega póstur frá Lauru, kærustu hans í LA, í pósthólfinu mínu um að hann væri að “drepa sig” með því að sofa hvorki né borða. Hann er nefnilega að skrifa 3D tölvuleik sem á að skila á miðvikudaginn – og hann er svo metnaðarfullur að hann hefur ekki gefið sér tíma til að fara út úr Packard byggingunni til að fá sér að borða! Þannig að Finnur og ég þutum í Safeway og keyptum 6 skammta af Marie Callender mat og svo snakk og kók og Finnur keyrði mig svo með allt þetta í skólann!! Augusto varð voða glaður að fá mat – og ég meiri að segja “njúkaði” matinn fyrir hann því leiðbeiningarnar voru svo flóknar að ég hafði áhyggjur af því að hann myndi ekki nenna að fylgja þeim!